Hoppa yfir valmynd

Flugtölur

Áhugaverðar flugtölur

Isavia birtir tölfræði um farþegafjölda, flughreyfingar, vöruflutninga og umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið.

FARÞEGAR

Fjöldi farþega  um flugvelli Isavia í heild nam rúmlega 7,9 milljónum árið 2019 en það var um 25% minnkun frá árinu 2018. Heildarfjölda millilandafarþega um íslenska áætlunarflugvelli fækkaði úr rúmlega 9,8 milljónum í tæplega 7,3 milljónir, eða um 26% milli ára. Hlutfallslega var  fjölgun á Akureyrarflugvelli, um 38% en á Keflavíkurflugvelli fækkaði millilandafarþegum um 26%, Egilsstaðaflugvelli fækkaði þeim um 37% og millilandafarþegum á Reykjavíkurflugvelli fækkaði um 34%. Innanlandsfarþegum fækkaði á sama tíma úr tæplega 737 þúsund í rúmlega 650 þúsund, eða um tæp 11,4%.

Fjöldi farþega á öllum flugvöllum Isavia

Millilandafarþegar Innanlandsfarþegar
2009 1872423 815042
2010 2123256 738502
2011 2528215 781357
2012 2818926 751505
2013 3259968 695556
2014 3910244 675828
2015 4907486 692622
2016 6869659 749134
2017 8806029 771892
2018 9859122 737319
2019 7292231 653130

FLUGHREYFINGAR

Flughreyfingar á flugvöllum Isavia voru rétt rúmlega 173 þúsund árið 2019. Það var rétt rúmlega 10% fækkun frá árinu áður. Flughreyfingar milli landa á íslenskum áætlunarflugvöllum voru tæplega 57 þúsund og var það minnkun um rúm 20%. Aukningin varð mest á Egilsstöðum, tæp 29%, en fækkun um rúmlega 21% á Keflavíkurflugvelli. Flughreyfingar innanlands á áætlunarflugvöllum voru rúmlega 116 þúsund, sem var um 4% minnkun milli ára.

Fjöldi flughreyfinga

Innanlandsflug Millilandaflug
2009 124132 24957
2010 124940 25883
2011 106093 28856
2012 113408 30902
2013 115475 33435
2014 127527 37882
2015 133353 43089
2016 118274 54536
2017 128897 65528
2018 121493 71577
2019 116574 56902

VÖRUFLUTNINGAR

Árið 2019 fóru alls tæplega 56 þúsund tonn af vörum um flugvelli félagsins og var það tæplega 8% minnkun frá fyrra ári. Vöruflutningar milli landa voru rétt tæplega 55 þúsund tonn árið 2019 en það var 8% minnkun milli ára. Vöruflutningar innanlands voru rúmlega 1.140 tonn árið 2019 og var það rúmlega 9% minnkun frá fyrra ári.

Magn vöruflutninga (tonn)

Millilandaflutningar Innanlandsflutningar
2009 38598 1852
2010 36447 1669
2011 38191 1641
2012 40566 1681
2013 42705 1570
2014 43257 1546
2015 44980 1582
2016 49865 1763
2017 56286 1348
2018 59436 1261
2019 54710 1143

Rúmlega 181 þúsund flugvélar fóru um íslenska flugstjórnarsvæðið árið 2019 og var það minnkun um rúm 7% frá árinu 2018. Alls voru flognir rúmlega 250 milljónir kílómetrar í íslenska úthafsflugstjórnarsvæðinu árið 2019. Rétt rúmlega fjórðungur flugumferðar á leið yfir Norður-Atlantshafið fer í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið sem er í umsjá Isavia. Svæðið hefur nokkra sérstöðu meðal úthafssvæða vegna sveigjanleika, bæði hvað varðar flugleiðir og flughæðir.

Fjöldi flugvéla sem fóru um flugstjórnarsvæðið

Fjöldi
2009 101503
2010 102275
2011 111489
2012 107998
2013 116326
2014 130856
2015 145891
2016 165636
2017 185296
2018 196001
2019 181393

Önnur umsvif

Þjónusta

Umhverfisáhrif af flugvallarekstri