Flugslysaæfing á Akureyrarflugvelli
Á þriggja til fjögurra ára fresti er haldin stór flugslysaæfing á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug. Heildarferli aðgerða vegna flugslyss er þá æft með aðkomu helstu viðbragðsaðila innan sem utan flugvallarins. Settur er upp slysavettvangur með eldi, braki, förðuðum leikurum og fleiru til þess að skapa sem raunverulegastar aðstæður.

Um nýliðna helgi var haldin flugslysaæfing á Akureyrarflugvelli. Slík æfing var síðast haldin þar í október 2022 en eitt af markmiðum skipuleggjara er að æfingar fari fram á mismunandi tímum ársins þar sem aðstæður geta verið ólíkar. Æfingin er tvískipt. Fyrst er haldin borðæfing þar sem lykilaðilar fara yfir verklag, aðkomu og skipulag. Daginn eftir er sviðsett slys þar sem kveikt er í braki og öðru sem komið hefur verið fyrir á vallarsvæðinu. Neyðaraðilar eru þá kallaðir út, stjórnstöð virkjuð og unnið eftir sömu verkferlum og í raunverulegu atviki.
Að æfingunni komu helstu viðbragðsaðilar innan sem utan flugvallarins, þar á meðal Almannavarnir, Isavia, starfsfólk Reykjavíkurflugvallar, björgunarsveitir á svæðinu, starfsfólk Landspítalans og heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvilið, Landhelgisgæslan og Rauði krossinn ásamt sjálfboðaliðum sem leika slasað fólk á vettvangi.
Eftir æfinguna var Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, í viðtali á RÚV þar sem einnig var sýnt frá æfingunni. Innslagið hefst á mínútu 8.
Áhugasamir geta lesið nánar um flugslysaæfingar á vefsíðu Isavia Innanlandsflugvalla, Flugslysaæfingar


