Hljóðmælingar á Reykjavíkurflugvelli
Innanlandsflugvellir hafa tekið í notkun nýtt og gagnvirkt hljóðmælingakerfi við Reykjavíkurflugvöll þar sem mælum hefur verið komið fyrir á flughlaði 1 við Nauthólsveg og á húsnæði Þjóðminjasafns Íslands á Vesturvör í Kópavogi. Stefnt er að því að bæta við tveimur mælum norðan og vestan við flugvöllinn síðar á árinu en verið er að vinna mat um bestu mögulegu staðsetningu mælanna þar sem hávaðamælingar hafa sýnt að lítill munur getur verið á daglegu amstri og því þegar flogið er yfir.
Eftir að eldsumbrot hófust á Reykjanesinu árið 2021 fjölgaði þyrlum á Reykjavíkurflugvelli hratt og tvöfaldaðist fjöldi þeirra á tveimur árum, eru nú um 12-14 í starfsemi frá vellinum. Kvörtunum sem sneru að hljóðvist í umhverfinu fjölgaði jafnframt og hafa þær aldrei verið fleiri en árið 2023 þegar um 154 tilkynningar bárust Innanlandsflugvöllum. Í kjölfarið var farið í þá vinnu að bæta flugferla og beina flugi frá helstu íbúðabyggð í samvinnu við Avians með bætt hljóðstig í huga. Einnig var horft til Keflavíkurflugvallar varðandi hljóðmælingakerfi sem var innleitt þar fyrir nokkrum árum umhverfis flugvöllinn og hefur breytt umræðunni um hávaða töluvert og gefið íbúum í nágrenni flugvallarins tækifæri á að sjá nákvæmlega hvaða flug um ræðir, flugferil viðkomandi loftfars og nákvæma hávaðamælingu í desíbelum.

Innanlandsflugvellir eru í eigu íslenska ríkisins sem fjármagnar verkefnið og voru hljóðvistarmælarnir keyptir frá fyrirtækinu Casper og settir upp af Mekatronik en þeir aðilar hafa átt gott samstarf sína á milli sem og við aðila Keflavíkurflugvallar.
Á flugrakningarsíðunni, sem finna má á heimasíðu Innanlandsflugvalla, er hægt að fylgjast með flugferlum við Reykjavík ásamt hljóðstyrk. Á heimasíðunni er einnig möguleiki á að senda inn kvartanir hafi fólk ábendingar um það sem betur má fara við hvern flugvöll. Með þessu er hægt að halda betur utan um hljóðvist og tengja við flughreyfingar og bregðast við með þróun flugferla þannig að hljóð frá loftförum trufli síður nágranna vallarins.
Mælarnir eru mjög nákvæmir og nema alla hljóðvist í nágrenninu, bæði frá flugumferð sem almennri umferð á götum í kring og ýmsum þeim framkvæmdum sem eru í gangi hverju sinni. Því er mikilvægt að finna þeim góða staðsetinginu sem sýnir skýrt hver hávaðinn er.
Verið er að vinna í íslenskri útgáfu á vefsíðunni sem er enn sem komið er á ensku en þar er að finna leiðbeiningar um notkun síðunnar ef ýtt er á spurningarmerki neðst í horni vinstra megin.
Hér má finna flugrakningarsíðu fyrir Reykjavíkurflugvöll
Flugrakningarsíða Keflavíkurflugvalllar
Link á kvartinir vegna hávaða má finna á undirsíðum flugvallanna á innanlandsflugvellir.is