
Flugsýning á Reykjavíkurflugvelli
Margir lögðu leið sína á Reykjavíkurflugvöll um liðna helgi til að sjá nýjar og gamlar flugvélar, þyrlur og dróna sem meðal annars tóku þátt í árlegum viðburði sem Flugmálafélag Íslands stendur fyrir í samstarfi við Isavia Innanlandsflugvelli.
Markmið sýningarinnar er að kynna íslenska flugmenningu og mikilvægi flugs á Íslandi og gefa fólki tækifæri að skoða vélar í návígi, hitta flugmenn og annað áhugafólk.
Á viðburðarsíðu haldara segir: „Á flugsýningunni má með lifandi hætti sjá þann drifkraft og orku sem liggur í grasrót flugs á Íslandi. Á henni virðum við söguna, hið liðna, fögnum núinu og undirbúum framtíðina með því að vekja áhuga hjá komandi kynslóðum“
Veðrið lék við gesti og skapaði kjöraðstæður fyrir flugatriðin sem voru af ýmsum toga þar sem þaulæfðir flugmenn sýndu listflug, þotur flugu yfir ásamt þyrlum og drónum meðal annarra skemmtilegra atriða.