
Ný brautarheiti á Reykjavíkurflugvelli
Nýju heitin eru unnin út frá stafrófinu og upphafsstöfunum G, H, J, K, L, M og R sem raðast réttsælis um völlinn. Þessi breyting felur í sér að akbrautir bera ekki lengur sama heiti beggja vegna flugbrautar. Jafnframt hafa „holding point“ staðsetningar verið endurskilgreindar.
Markmið breytingarinnar er að draga úr líkum á brautar átroðningi (runway incursions) með því að auðvelda flugáhöfnum og flugumferðarstjórn að bera betri kennsl á staðsetningu loftfara og ökutækja á flugvellinum. Skýrari staðsetningar og skipulag stuðla að bættri yfirsýn og öruggari notkun akbrauta fyrir loftför og ökutæki.
Kort til útprentunar má finna á vefsíðu Isavia Innanlandsflugvalla með því að smella hér
Einnig má sjá kennslumyndband á YouTube rás Isavia skólans sem sýnir flæði um völlinn.