
Um 70 ferðaþjónustufyrirtæki á HITTUMST
Isavia Innanlandsflugvellir tóku þátt í HITTUMST, árlegum viðburði á vegum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins þar sem ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu fá vettvang og tækifæri til að kynna vörur sínar og þjónustu og um leið styrkja tengsl og þekkingu sín á milli.
Um 70 fyrirtæki mættu í Hafnarhúsið og kynntu þjónustu sína ásamt Sólveigu og Sigrúnu Björk sem voru fulltrúar Innanlandsflugvalla á viðburðinum. Áætlað er að um um 1.000 manns hafi lagt leið sína þangað til að kynna sér allt það helsta sem ferðaþjónustan á höfuðborgarsvæðinu hefur upp á að bjóða en lesa má meira um Markaðsstofuna hér