
Árleg FOD ganga á Reykjavíkurflugvelli
Árlega er haldin svo kölluð FOD ganga á flugvöllum innanlandsflugvalla í þeim tilgangi að vekja athygli og minna á mikilvægi þess að athafnasvæði flugvalla sé alltaf hreint. Starfsfólk af öðrum starfsstöðvum en þeim sem alla jafna sinna viðhaldi flugvallarins tók þátt í göngunni sem fram fór á Reykjavíkurflugvelli í vikunni og hreinsaði á og við flugbrautina.
FOD, Foreing object debris, eru allir hlutir sem finnast á athafnasvæði flugvallar og valdið geta skemmdum á loftfari eða persónulegum skaða. Dæmi um FOD eru ferðataska sem skilin er eftir, umbúðarusl, hlutir eftir viðhaldsvinnu, steinar og annað því um líkt. Með öðrum atburðum á flugvelli getur skapast hætta af þessum hlutum, s.s. ef steinn fýkur upp vegan lofttöku þyrlu eða vél lendir og dekk springur.
Allt starfsfólk Isavia fer í gegnum námskeið áður en störf hefjast og er þar meðal annars fjallað um FOD í nýliðafræðslunni. Samkvæmt öryggisáætlun Isavia innanlandsflugvalla er viðburðurinn árlegur og felur í sér þjálfun og fræðslu fyrir alla þá sem koma að starfsemi flugvallarins en þarna er líka gott tækifæri til að hitta samstarfsfólk sitt og sjá vinnustaðinn frá öðru sjónarhorni.