Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Sigrún Björk Jakobsdóttir. Hún var ráðin framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia ohf. í desember 2018 og síðan framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla í janúar 2020.
Sigrún Björk er hótelrekstrarfræðingur frá IHTTI hótelskólanum í Sviss. Hún var áður hótelstjóri hjá Icelandair hótelunum og þar áður bæjarstjóri á Akureyri. Sigrún Björk hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, samtaka og stofnana og hefur víðtæka reynslu af vettvangi ferðaþjónustu og sveitarstjórnarmála. Sigrún Björk hefur verið stjórnarformaður Landsnets frá árinu 2016-2025
Skipan stjórnar Isavia Innanlandsflugvalla 2025-2026
Matthías Páll Imsland er stjórnarformaður frá árinu 2020. Hann er stjórnmálafræðingur frá HÍ og með MS próf frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, hefur stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnámi við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum.
Matthías er framkvæmdastjóri ýmissa fjárfestingarfélaga. Hann var aðstoðarmaður félags- og húsnæðismálaráðherra frá 2013-15, aðstoðarmaður forsætisráðherra frá janúar-apríl 2016 og var síðan aftur aðstoðarmaður félags- og húsnæðismálaráðherra frá apríl 2016-janúar 2017, var um tíma framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express. Matthías var kosinn í stjórn Isavia ohf. á aðalfundi 2014, varaformaður 2014-2017 og frá 2018. Matthías er óháður Isavia ohf., daglegum stjórnendum fyrirtækisins og eiganda þess.
Eva Pandora Baldursdóttir er stjórnarmaður frá árinu 2020. Hún er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, MA í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og diplóma í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Eva Pandora hefur starfað sem sérfræðingur á Þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar frá 2021. Hún var sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar 2017-2021, alþingismaður Norðvestur kjördæmis 2016–2017, viðskiptafræðingur hjá KPMG 2016, skipuleggjandi ferða hjá Iceland Travel 2015–2016 og viðskiptafræðingur hjá Fjárvakri 2012–2015. Eva Pandora var kosin í stjórn Isavia ohf. á aðalfundi 2018 og situr í starfskjaranefnd Isavia ohf. Eva Pandora er óháð Isavia ohf., daglegum stjórnendum fyrirtækisins og eiganda þess.

Ingibjörg Arnarsdóttir er stjórnarmaður frá árinu 2026. Hún er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School. Ingibjörg var framkvæmdastjóri fjármála og mannauðs og seinna stjórnunar- og mannauðs hjá Valitor 2008-2016 og framkvæmdastjóri fjármála-, mannauðs- og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna 2016-2020. Hún var ráðin framkvæmdastjóri fjármála hjá Isavia 2020.
Stjórnarhættir
Isavia Innanlandsflugvellir ehf. er í eigu Isavia ohf. Um starfsemi félagsins gilda lög nr. 65/2023 um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð.
Stjórnarhættir Isavia Innanlandsflugvalla taka mið af lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Félagið fylgir almennri eigandastefnu ríkisins sem gefin var út í september 2021, ásamt viðauka er snýr að Isavia ohf.
Stjórn félagsins hefur „Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja“ til hliðsjónar í störfum sínum og uppfyllir þær í öllum meginatriðum þrátt fyrir að félaginu beri ekki að fylgja leiðbeiningunum lögum samkvæmt. Helsta frávik er að ekki er starfandi tilnefningarnefnd hjá félaginu þar sem tilnefningar í stjórn félagsins er hjá Fjármála- og efnahagsráðherra sem fer með hlut ríkisins í Isavia ohf. Undirnefndir stjórnar eru endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Starfssvið endurskoðunar- og starfskjaranefndar nær einnig til dótturfélaga Isavia ohf.
Stefna hefur verið sett um sjálfbærni