Hoppa yfir valmynd

Störf í boði hjá innanlandsflugvöllum

Innanlandsflugvellir

Við hjá Isavia Innanlandsflugvöllum erum reglulega að leita að glaðlyndum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt með okkur á flugvöllum félagsins. 

Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. 

Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum. 

Starfsstöðvar okkar eru um allt land en stærstu starfsstöðvarnar eru í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og á Ísafirði. 

Almenn umsókn um starf hjá Isavia Innanlandsflgvöllum kemur ekki í staðin fyrir umsókn um auglýst störf. Almennar umsóknir gilda út almanaksárið, ef þú hefur ekki heyrt frá okkur um áramót og ert enn að leita þér að starfi hvetjum við þig til að endurnýja umsókn þína.

Í samræmi við lög um þjóðskjalasafn er umsóknum eða upplýsingum um umsækjendur í kerfum Isavia ekki eytt.

Sækja um

Við leitum eftir ráða einstakling á Akureyrarflugvöll. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í spennandi og skemmtilegu starfsumhverfi. Helstu verkefni eru björgunar- og slökkviþjónusta, flugverndargæsla, viðhald og umhirða flugvallarmannvirkja og flugbrauta á norðurlandi. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Bílpróf er skilyrði 

  • Meirapróf er skilyrði 

  • Vinnuvélapróf er skilyrði 

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur 

  • Reynsla af slökkvistörfum er kostur 

  • Reynsla af snjóruðningi og hálkuvörnum er kostur 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta 

  • Rétt litaskynjun  

  • Lipurð mannlegum samskiptum  

  • Þjónustulund og metnaður í starfi 

  • Viðkomandi þarf að standast þrek- og styrktarpróf 

 

Upplýsingar um starfið veitir Hermann Jóhannesson, umdæmisstjóri [email protected] 

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Sækja um

Vilt þú taka virkan þátt í tryggja öruggan og skilvirkan rekstur flugvalla um allt land?

Við leitum eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til leiða öryggis- og gæðamál  hjá Isavia Innanlandsflugvöllum Vinnubrögð verða vera öguð og skipulögð, samskiptahæfileikar góðir og  þekking á öryggis- og gæðamálum mikil 

Helstu verkefni 

  • Umsjón og eftirfylgni á öryggis- og gæðakerfi og viðhalda verklagi 
  • Umsjón með skilvirkni og frammistöðu stjórnunarkerfis og framþróun þess 

  • Heldur utan um og kynnir öryggis- og gæðamælikvarða með reglulegum hætti 

  • Framkvæmd áhættugreininga og eftirfylgni með mildunaraðgerðum 

  • Umsjón með skráningu, úrvinnslu og greiningu atvika m.a. slysaatvika 

  • Viðhald og eftirlit á öryggis- og gæðamælikvörðum og framsetning þeirra 

  • Yfirsýn á þjálfunarmál flugvallarþjónustu 

  • Leiða verkefni sem stuðla umbótum og aukinni öryggisvitund 

  • Samskipti við innlenda og erlenda aðila um öryggis- og starfsleyfismál 

  • Stuðningur og ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk um öryggis- og gæðamál

  • Tengiliður við Isavia ohf. í öryggis- og gæðamálum 

Hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla  af innleiðingu og eftirfylgni  öryggis- og gæðastjórnunarkerfa 
  • Leiðtogahæfni og góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 

 

Ef þú brennur fyrir öryggis- og gæðamálum og vilt hafa áhrif á þróun flugvallareksturs á Íslandi, þá hvetjum við þig til sækja um.  

Isavia Innanlandsflugvellir  reka þrjá alþjóðaflugvelli, níu áætlanaflugvelli og 35 lendingarstaði víða um land. 

Starfsstöð: Reykjavíkurflugvöllur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Björk Jakobsdóttir framkvæmdastjóri, [email protected]  

Sækja um