Hoppa yfir valmynd
17.9.2025
Fjórir nýir slökkvibílar

Fjórir nýir slökkvibílar

Fjórum nýjum, sérútbúnum slökkvibílum var ekið af stað í dag frá Reykjavíkurflugvelli á fjóra innanlandsflugvelli víða um land þar sem þeir verða afhentir til notkunar. Bílarnir verða notaðir til viðbragðs á flugvöllunum á Bíldudal, Gjögri, í Grímsey og á Hornafirði. 


Bílarnir eru af gerðinni Ford 550 og voru keyptir að undangengnu útboði  í gegnum Ólaf Gíslason & Co hf. og fluttir til landsins í samstarfi við Brimborg. Breytingar voru gerðar á bílunum hjá fyrirtækinu Wiss í Póllandi sem sérhæfir sig m.a. í framleiðslu og breytingum á bifreiðum. 

„Það er mikið fagnaðarefni að taka á móti þessum slökkvibílum sem eiga eftir að styrkja til muna neyðarviðbúnað á flugvöllunum sem um ræðir og í nágrenni þeirra,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Innanlandsflugvellir fengu sérstakt framlag frá Innviðaráðuneytinu  á árunum 2024+2025 til að hefja endurnýjun á mikilvægasta öryggisbúnaði flugvallanna og var ákveðið  að endurnýjun á þessum bílum væri brýnasta verkefnið. En það er stórt verkefni sem bíður okkar með fulltingi eigandans að endurnýja þjónustutæki flugvallanna bæði út af aldri en ekki síður út af umhverfissjónarmiðum.“  

 

Bílarnir eru með 2400 lítra vatnstanki, duftkút og 290 lítra léttavatnstanki sem dugar til blöndunar í fjórar áfyllingar af vatni. Það þýðir að ekki þarf að geyma auka lager af léttavatni á hverjum stað fyrir sig eins og á eldri bifreiðunum, heldur er allt auka léttavatn tilbúið á bílunum. 
 

Enn einn kostur við nýju bílana er að þeir eru búnir svokölluðum „Pump and Roll“ búnaði, sem gerir það að verkum að einn aðili getur unnið á bílnum, það er að segja keyrt, stýrt stuðarabyssunni (e Turretinu) og sprautað úr tankinum.  

„Þetta er gríðarleg bylting í öryggi í alla staði,“ segir Páll Janus Hilmarsson, umdæmis- og flugvallarstjóri á Ísafirði, en flugvöllurinn á Gjögri, sem fær einn nýju bílanna, tilheyrir hans umdæmi. „Við fáum öruggari bíla og öflugri búnað. Breytingin þýðir tvöföldun slökkvimagns hjá okkur á Gjögri en einnig á Bíldudal og í Grímsey. Við förum úr 1200 lítrum af vatni í 2400 lítra. Þar munar um minna því öflun vatns er víða áskorun, sérstaklega á þessum þrem stöðum.“ 

 Sigrún Björk  bætir við að nýju bílarnir séu umhverfisvænni með nútíma mengunarvörnum. Þeir séu notendavænni og aðgengi að búnaði betra. 

„Ég bind miklar vonir við að þetta verði einfalt og notendavænt, þannig var lagt upp með hönnunina og gæti verið góð uppskrift til framtíðar,“ segir Sigrún. 

„Þrátt fyrir þessi útskipti er slökkvibílafloti Innanlandsflugvalla kominn til ára sinna. Það eru slökkvibílar í rekstri sem komu um aldamótin.  Það er því ljóst að útskipti eldri tækja mættu vera hraðari,“ bætir Páll Janus við. 

„Bílarnir munu einnig auka öryggi og bæta viðbragð hjá staðarslökkviliðum  því að mjög góð samvinna er á milli Innanlandsflugvalla og slökkviliðanna í héraði.“ Bætir Sigrún Björk við að lokum.  

 

Áætlað er að bílarnir fjórir verði allir komnir á áfangastað í lok mánaðarins.