Flugvellir Innanlandsflugvalla nýttir þegar vont veður skall á við Keflavíkurflugvöll
Mikill byr skall á við sunnanvert landið í gær sem hafði áhrif á millilandaflug við Keflavíkurflugvöll. Sautján þotur nýttu þá alþjóðaflugvellina í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum sem sannreyndu mikilvægi sitt þegar upp koma slíkar aðstæður að ekki er hægt að lenda í Keflavík.

Starfsfólk Isavia Innanlandsflugvalla er þjálfað til að vera alltaf viðbúið og bregðast við slíkum aðstæðum sem í gær höfðu áhrif á um tvo þúsund farþega sem nú eru komnir á leiðarenda. Fagmannleg viðbrögð í óvæntri stöðu eru kjarni í undirbúningsvinnu og þjálfun starfsfólks Innanlandsflugvalla sem stóð langa vakt í gær til að taka á móti þotum í millilandaflugi og vélum í innanlandsflugi á sama tíma ásamt sjúkra- og neyðarflugi. Náin samvinna flugvallarþjónustu og flugumferðarstjóra í slíkum aðstæðum er gríðarlega mikilvæg og sýndi sig í aðstæðum sem sköpuðust í gær þar sem lenda þurfti og koma fyrir þremur þotum á Egilsstöðum, átta á Akureyri og sex á Reykjavíkurflugvelli.

Fjallað var um veðrið og flugið á mörgum miðlum í gær sem sjá má hér í linkum ásamt myndefni frá völlunum.
20 flug raskast vegna skyndilegs byls
Þurftu að hverfa frá Keflavík vegna veðurs