Hoppa yfir valmynd
19.3.2026
Ratsjárbúnaður á Akureyrarflugvelli

Ratsjárbúnaður á Akureyrarflugvelli

Ratsjárbúnaður Akureyrarflugvallar uppfyllir ekki núgildandi kröfur

Notkun loftnets við Akureyrarflugvöll verður nú takmörkuð við veðurupplýsingar en það hefur verið í notkun í 55 ár. Í gegnum tíðina hefur ratsjárbúnaður verið endurnýjaður og aðlagaður aðstæðum en uppfyllir ekki lengur núgildandi kröfur um vottun búnaðar sem notaður er við flugleiðsögu. Ratsjáin og verklagið sem hefur verið í notkun á Akureyrarflugvelli hefur einungis nýst til að aðstoða flugmenn við lendingu í slæmum veðurskilyrðum og til upplýsingagjafar um veður en ekki til aðskilnaðar eða annarrar vinnu flugumferðarstjóra.  

Ferlið hefur tekið nokkur ár og hófst með því að frávik var skráð við úttekt Samgöngustofu 19. apríl 2022 vegna verklags flugleiðsöguþjónustu við notkun LOC/ASR RWY 01. Í framhaldi af því var unnin greinargerð þar sem farið var yfir þá möguleika sem taldir voru mögulegir til að loka frávikinu. Niðurstaðan var að lagfæra verklagið og fá þá undanþágu til framlengingar fráviksins þar til hægt væri að loka því með því að samhliða innleiðingu RNP aðflugsferils yrði verklagið lagt niður ásamt LOC/ASR RWY 01.
Hefðbundið samráð var haft við notendur vegna innleiðingar nýja RNP aðflugsferilsins auk ítarlegs samráðs við Icelandair, Norlandair, og EasyJet vegna RNP AR auk þess sem flugrekendur tóku virkan þátt í vinnslu greinargerðarinnar sem lögð var til grundvallar vegna úrbóta fráviksins.

Ný RNP AR aðflug bjóðast nú til viðbótar við gildandi aðflugsferla en notendur þurfa að uppfylla sértækar kröfur um búnað og þjálfun flugmanna. Vegna þess að hluti notenda Akureyrarflugvallar er ekki tilbúin að nýta sér nýju aðflugaðflugsferlana var skoðað að óska eftir framlengingu fráviksins þar til hægt yrði að bjóða upp á fleiri RNP ferla sem gera minni kröfur til notenda. Niðurstaða þeirrar skoðunar er að hvorki verklagið né búnaðurinn uppfyllir kröfur sem gerðar eru til flugleiðsögu og viðbúið að innleiðing nýrra ferla taki um eitt og hálft ár og því ekki fært að fara þá leið.

Flugöryggi er helsta verkefni Isavia

Til að tryggja flugöryggi er stöðugt unnið að innleiðingu nýrrar tækni og verklags fyrir flugvelli og flugleiðsöguþjónustu á Íslandi sem standast kröfur um áreiðanleika og gæði þjónustunnar. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar vegna flugs um Akureyrarflugvöll undanfarin ár s.s. innleiðing ILS, uppfærsla aðflugskorta, endurskoðun verklags og þjálfun starfsmanna. Eitt af stærri verkefnum sem nú er unnið að er að innleiða notkun svokallaðs ISDS kögunarkerfi í flugturninum á Akureyri en með þeirri innleiðingu geta flugumferðarstjórarnir nýtt ADS-B og ratsjármerki frá flugvélum í nágrenni flugvallarins við störf sín. Eins er í skoðun hvernig hægt sé að nýta upplýsingar frá nýjum veður ratsjám Veðurstofu Íslands í flugturninum á Akureyri.

Fyrsta loftneti komið fyrir 1954 á Akureyri

Saga ratsjár á Akureyri hófst árið 1954 þegar þegar radarloftneti var komið fyrir á húsþaki í miðbæ Akureyrar, á horni Skipagötu og Kaupvangsstrætis og nýttist hún í fimm ár þar til sett var upp ný ratsjá á Akureyrarflugvelli. Sú var tengd nýjum flugturni, sú fyrsta af Decca gerð (Decca MR424) og í kjölfarið voru slíkar ratsjár innleiddar við flugvellina í Reykjavík, Egilsstaði og Ísafjörð. Það var svo árið 1971 sem sett var upp Plessey 430 ratsjá en Plessey radar loftnetið var fyrst hannað uppúr 1960 fyrir breska flugvelli. 

Árið 1988 var tekin í notkun á Akureyri Kelvin Hughes Manta ratsjá sem tók þá við af Plessey 430 en búnaðurinn var áfram tengdur Plessey loftnetinu. Þessi nýi búnaður var hannaður á sínum tíma til notkunar um borð í skipum og sú aðgerð að tengja flugvallarloftnet við skiparadatsjártæki var gerð til að spara háar fjárhæðir á þessum tíma.

Framfarir í flugöryggi verða aldrei til af sjálfu sér – þær verða til vegna ákvarðana. Isavia heldur áfram að taka þær réttu ákvarðanir til að byggja upp áreiðanlegt, nútímalegt og öruggt flugumhverfi fyrir alla þá sem treysta á Akureyrarflugvöll.  Með þessum breytingum er lagður traustur grunnur að því að Akureyrarflugvöllur verði áfram í fremstu röð – með öryggi, fagmennsku og skýra sýn að leiðarljósi.