Hoppa yfir valmynd
4.11.2026
Einar Örn Héðinsson ráðinn umdæmisstjóri

Einar Örn Héðinsson ráðinn umdæmisstjóri

Einar Örn Héðinsson hefur verið ráðinn umdæmisstjóri í Umdæmi 3 og flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli. Einar, sem er sjálfur Akureyringur, er með stúdentspróf frá MA og próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands auk framhaldsnáms frá Danmarks Tekniske Universitet.

Mikil uppbygging hefur verið á Akureyrarflugvelli síðustu ár með auknu millilandaflugi en flugvöllurinn er einn af fjórum alþjóðaflugvöllum landsins og varaflugvöllur fyrir Keflavík. Í umdæminu eru þrír aðrir flugvellir og átta lendingarstaðir sem umdæmisstjóri hefur yfirumsjón með.

Einar hefur góða reynslu af störfum við samgöngur eftir að hafa starfað hjá Flugmálastjórn Íslands og við flugmál hjá Samgöngustofu í rúma tvo áratugi, lengst af þar sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs. Einnig hefur hann unnið hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO og þekkir því vel til umhverfis flugs og flugvalla.

Einar hefur þegar hafið störf og er boðinn velkominn í góðan hóp starfsfólks Isavia Innanlandsflugvalla.