Flugdagar á flugvöllum innanlands
Árlega eru flugsýningar haldnar á stærstu flugvöllum landsins og iðulega vel sóttar af áhugamönnum, ungum sem öldnum. Flugmálafélag Íslands heldur utan um flugsýninguna í Reykjavík og Flugsafn Íslands sér um skipulag flugdagsins á Akureyri. Markmiðið með slíkum viðburðum er að kynna íslenska flugmenningu og gefa fólki tækifæri til að skoða vélar í návígi, hitta flugmenn og annað áhugafólk og fylgjast með flugmönnum allavega loftfara leika listir sínar.
Á Egilsstaðaflugvelli fer einnig í sumar fram græjuhátiðin Flug & Fákar sem haldin er annað hvert ár. Þar má sjá vélar og græjur af öllu tagi, því auk loftfara eru þar fornbílar, trukkar, vinnuvélar og fleiri skemmtileg tæki sem gaman er að skoða.
Flugdagar og sýningar í sumar eru haldnar á þessum dögum:
Flugdagur á Reykjavíkurflugvelli 30. maí kl. 12–16 Flugmálafélag Íslands
Flugdagur á Akureyrarflugvelli 20. júní 13–16 Flugsafn Íslands
Flug & Fákar á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 12–16
Myndirnar sem hér fylgja eru frá flugdögum á Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli 2025 þegar veður lék við hvern gest.


