Ómannað loftfar gert út frá Hornafjarðarflugvelli
Þau eru margvísleg flugin sem fara um velli Innanlandsflugvalla. Á Hornafjarðarflugvelli er nú að hefjast samstarfsverkefni EMSA, Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, og Landhelgisgæslunnar þar sem notast er við ómannað loftfar. Ætlunin er að fylgjast með hafsvæði landsins yfir sumartímann og verður dróninn nýttur við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland.
Meira má lesa um verkefnið í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni