Hoppa yfir valmynd
23.3.2026
Ratsjárbúnaður á Akureyri

Ratsjárbúnaður á Akureyri

Svar vegna fyrirspurnar þann 23. mars 2026.

Í apríl 2022 opnaði Samgöngustofa frávik frá reglugerðum vegna  verklags flugturnsins á Akureyri til að aðstoða flugmenn, með aðstoð ratsjár við notkun LOC/ASR aðflugsferils fyrir flugbraut 01 á Akureyrarflugvelli.

Verklagið hafði á sínum tíma verið unnið upp úr gömlum breskum reglum sem ekki eru lengur í gildi.

Rekstur flugleiðsögu er bundinn í nokkuð stífar og ítarlegar reglugerðir. Samgöngustofa, sem lögbært yfirvald, fylgist með hvernig og hvort Isavia uppfylli viðkomandi kröfur. Við úrvinnslu fráviksins var unnin greinargerð þar sem farið var yfir þær leiðir sem taldar voru mögulegir til að loka frávikinu. Greinargerðin var unnin með þátttöku helstu flugnotenda á Akureyrarflugvelli  á þeim tíma.

Verklagið var lagfært og óskað eftir framlengingu til lokunar fráviksins þar til annar kostur væri kominn í stað ratsjáraðflugsins. Framlengdur frestur  til lokunar rann út 19. mars s.l.

Upphafleg áætlun var að gefa út Advanced RNP og síðar RNP AR (Authorization Required) en báðar tegundir eru byggðar á hæfisbundinni leiðsögu. Innanlandsflugvellir ákvað að breyta forgangsröðinni og því var RNP AR ferillinn hannaður fyrst og tók gildi 19. mars síðastliðinn. Samhliða var verklagið við ratsjána og aðflugsferillinn sem olli frávikinu tekinn úr notkun Hönnun nýrra aðflugsferla byggir á nánu samráði og samvinnu við notendur og í þetta sinn var aukið samráð haft við notendur. Sem dæmi um aukið samráð má nefna sérstaka kynningarfundi vegna verkefnisins sem haldnir voru 18.11.2024 á Akureyri, 19.02.2024 og 21.02.2024 auk annarra samskipta í tölvupóstum við  hagaðila.  .

Þegar nær dró gildistöku RNP AR og þar með lokun fráviksins með því að taka ratsjáraðflugið úr notkun var haft samband við þá notendur sem eftir eru og óskað eftir stöðu hjá þeim. Í ljós kom að enginn þeirra sem stunda reglubundið flug til og frá Akureyri eru tilbúnir að nota RNP AR og  ekki Advanced RNP heldur. Í samtölum við Samgöngustofu vegna þessa kom í ljós að ekki yrði hnikað frá kröfum um að hætta notkun ratsjáraðflugsins á þeim forsendum að hvorki verklagið né búnaðurinn sjálfur uppfyllir ytri kröfur, í því sambandi var vísað í EU reglugerð 2023/1768 sem tók gildi á Íslandi í nóv. 2025 sem og  þá reglugerð sem var í gildi þar á undan (552/2004).

Tengiliðum hjá Icelandair og Norlandair var tilkynnt þessi niðurstaða í byrjun mars mánaðar.

Auk RNP AR er til staðar ILS aðflug úr suðri sem er með bröttu aðflugshorni en til að nota "bratt" ILS þá þarf framleiðandi loftfarsins að samþykkja slíka notkun. Þeir notendur sem þannig geta notað ILS aðflugið komast  heldur nær flugbrautarenda í aðflugi en með aðstoð ratsjáraðflugsins.  Einhverjir notendur hafa ekki enn fengið heimild til að fljúga þetta aðflug og þeir sem það mega geta verið takmarkaðir við þyngd eða veðuráhrif s.s. vegna ísingar.

Notkunin á ratsjáraðflugi hefur verið lítil undanfarin ár, sérstaklega eftir innleiðingu bratta ILS aðflugsins og erfiðlega hefur gengið að viðhalda færni flugumferðarstjóra við að veita þjónustuna. Þess má geta að hvorki Easy Jet eða  millilandahluti Icelandair hafa viljað þjálfa ratsjáraðflugið. Undanfarin ár er verklagið og aðflugsferilinn sem um ræðir (ASR RWY 01) notaður um 100 sinnumá ári sem er á milli 2-3% af aðflugum en þar af er  a.m.k. helmingur að beiðni flugumferðarstjóra í því skyni að viðhalda hæfni til að veita þjónustuna, sjá notkun aðflugsferla á tímabilinu júní til desember árið 2021 hér fyrir neðan. Þetta eru gögn sem voru notuð m.a. í greinargerðinni á sínum tíma. Lausleg talning árið 2025 sýndi að flest ratsjárflug voru flogin í júlímánuði.

Ýmsar framfarir eru fyrirsjáanlegar vegna flugumferðarstjórnar á Akureyrarflugvelli. Unnið er að innleiðingu svokallaðs ISDS kögunar kerfis sem nýtt er í Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík í dag. Eins hefur verið rætt um að setja upp Fjölvísunarkerfi (MLAT) við flugvöllinn.

Ítarlegri upplýsingar um sögu ratsjárinnar er að finna á https://www.innanlandsflugvellir.is/innanlandsflugvellir/frettir/ratsjarbunadur-a-akureyrarflugvelli

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla