Framtíð flugsins er rafmögnuð
Rafmagnsflug er ekki lengur fjarlæg framtíðarsýn. Tækninni fleygir fram og nú er svo komið að gert er ráð fyrir að fyrsta áætlunarleið rafmagnsflugvélar geti orðið að veruleika eftir fimm ár. Víða á Norðurlöndum er unnið markvisst að því að undirbúa innviði, þróa ný rekstrarlíkön og skapa forsendur fyrir orkuskiptum í flugi. Fyrir Ísland, þar sem flugsamgöngur gegna mikilvægu hlutverki í að tengja byggðir landsins, geta þessar breytingar skapað einstök tækifæri.
Ný framtíð fyrir svæðisbundið flug
Á undanförnum árum hefur umræðan um framtíð flugsamgangna í auknum mæli snúist um loftslagsmál, orkuskipti og nýja tækni. Rafmagnsflug er einn þeirra valkosta sem gætu breytt því hvernig við skipuleggjum samgöngur, sérstaklega á styttri flugleiðum. Isavia ohf., Isavia Innanlandsflugvellir og Icelandair eru aðilar að Nordic Electric Aviation (NEA) sem er samstarfsvettvangur um þróun rafmagnsflugs á Norðurlöndunum. Á vettvangi NEA vinna flugvellir, flugrekendur, flugvélaframleiðendur, háskólar og sveitarfélög saman og móta framtíðarsýn um sjálfbærari flugsamgöngur. Á Gotlandi og Lofóten er rafmagnsflug meðal annars skoðað sem leið til að bæta samgöngur og styrkja byggðir. Þessi svæði eiga margt sameiginlegt með Íslandi. Áreiðanlegar samgöngur eru forsenda búsetu, atvinnulífs og aðgengis að þjónustu.
Getur rafmagnsflug breytt samgöngukerfinu?
Ein áhugaverðasta spurningin er hvort rafmagnsflug muni eingöngu koma í stað hefðbundinna flugvéla eða hvort tæknin muni breyta sjálfu samgöngukerfinu. Með minni rafmagnsflugvélum gætu skapast möguleikar á sveigjanlegri þjónustu þar sem flug er betur aðlagað eftirspurn. Hugmyndir um flug eftir þörfum, svokallað on-demand aviation, hafa því fengið aukna athygli. Í stað þess að byggja allar ferðir á föstum áætlunum og stærri flugvöllum gæti orðið mögulegt að tengja fleiri staði með aukinni tíðni minni véla. Einnig er verið að þróa flugvélar sem gætu nýtt mun styttri flugbrautir en hefðbundnar farþegaflugvélar og eins eru sumir framleiðendur að skoða sjóflugvélar sérstaklega. Slíkar lausnir gætu til lengri tíma breytt forsendum fyrir þróun og uppbyggingu flugvalla og skapað ný tækifæri fyrir strjálbýl svæði ásamt því að minnka hljóðmengun frá flugi. Fyrir Ísland, með sitt víðfeðma net flugvalla og lendingarstaða, er þetta mjög áhugavert.
Tækifærin eru mikil en áskoranirnar líka
Allar framfarir eru spennandi en mikilvægt er að hafa raunhæfar væntingar. Enn eru verulegar áskoranir varðandi drægni, rafhlöður, vottun og rekstrarhagkvæmni. Þyngd rafhlaðna hefur bein áhrif á hversu langt flugvélar geta flogið og hversu marga farþega þær geta flutt. Fyrir Ísland þarf jafnframt að taka sérstakt tillit til veðuraðstæðna. Einnig þarf að gæta að aðstæðum á varaflugvöllum sem myndu þá þjóna fyrst og fremst minni loftförum í innanlandsflugi og að sjálfsögðu ítrustu öryggiskröfum. Hagkvæmnin mun einnig ráða miklu um hraða breytinganna og yfirfærslur frá hefðbundnum flugvélum. Rafknúnar flugvélar gætu haft lægri orku- og viðhaldskostnað en á móti koma fjárfestingar í flugvélum, rafhlöðum og hleðsluinnviðum.Það er því ekki sjálfgefið að rafmagnsflug verði ódýrara. Samorka hefur áætlað að rafvætt innanlandsflug kalli á 16 MW tengingar samtals á flugvöllum landsins með 17 GWst orkuþörf. Mikilvægt verður að greina heildarkostnað og þróa rekstrarlíkön sem henta fámennum svæðum.
Flugvellir þurfa að vera tilbúnir
Þegar fyrstu rafmagnsflugvélarnar verða tilbúnar til almenns atvinnuflugs þurfa nauðsynlegir innviðir að vera til staðar. Flugvellir verða að geta boðið upp á hleðsluaðstöðu, nægilegt raforkuframboð og öruggt rekstrarumhverfi. Það kallar á samstarf flugvallarekenda, orkufyrirtækja, sveitarfélaga og flugrekenda. Fyrir Isavia Innanlandsflugvelli er mikilvægt að fylgjast náið með þróuninni og taka þátt í að móta lausnir sem henta íslenskum aðstæðum. Markmiðið ætti að vera að undirbúa framtíðina með greiningum og afmörkuðum tilraunaverkefnum, án þess að ráðast of snemma í kostnaðarsamar fjárfestingar.
Ísland sem vettvangur nýsköpunar
Ísland hefur ýmsa eiginleika sem geta gert landið að áhugaverðum vettvangi fyrir þróun rafmagnsflugs. Við búum yfir endurnýjanlegri raforku, umfangsmiklu flugvallaneti og mikilli reynslu af flugrekstri við krefjandi aðstæður. Spennandi væri að skoða möguleika á tilraunaverkefnum t.d. í Vestmannaeyjum, á Norðausturlandi og öðrum svæðum þar sem flugsamgöngur hafa mikla samfélagslega þýðingu. Slík verkefni gætu hafist með vöruflutningum, eða annarri sérhæfðri þjónustu áður en reglubundið farþegaflug verður raunhæft. Þátttaka í norrænum og evrópskum samstarfsverkefnum gæti jafnframt tryggt að íslenskir aðilar öðlist mikilvæga þekkingu og reynslu.
Meira en loftslagsmál
Rafmagnsflug er oftast rætt út frá umhverfissjónarmiðum. Þau eru mikilvæg, en fyrir Ísland gæti samfélagslegi ávinningurinn orðið ekki síður þýðingarmikill. Öflugar flugsamgöngur skipta máli fyrir búsetuskilyrði, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, menntun og atvinnu. Ef ný tækni getur gert okkur kleift að tengja fleiri byggðir, fjölga ferðum eða þróa nýja þjónustu verður ávinningurinn mun víðtækari en minni kolefnislosun. Spurningin er því ekki eingöngu hversu umhverfisvænt rafmagnsflug geti orðið, heldur einnig hvort það geti gert Ísland að betur tengdu samfélagi.
Framtíðin byrjar í dag
Enginn veit nákvæmlega hversu hratt rafmagnsflug mun þróast eða hvenær það verður hagkvæmur valkostur í áætlunarflugi. Óvissan er þó ekki ástæða til að bíða aðgerðalaus. Nú er rétti tíminn til að byggja upp þekkingu, efla samstarf og greina tækifærin. Ísland hefur áður sýnt að hægt er að nýta sérstöðu landsins og endurnýjanlega orku til að vera í fararbroddi í orkuskiptum. Það sama gæti átt við um flugið.
Spurningin er því ekki aðeins hvenær fyrstu rafmagnsflugvélarnar hefja reglubundið flug á Íslandi. Mikilvægari spurning er hvort við verðum tilbúin þegar þær koma.
Greinin birtist á visir.is